Vefkökustefna

Málmiðjan ehf., kt. 681125-0510, Vatnagarðar 22, 104 Reykjavík (hér eftir „Málmiðjan" eða „við") notar vefkökur á vefsíðu sinni til að þekkja notendur og veita þeim sem besta upplifun. Þær hjálpa okkur jafnframt að bæta vefsíðuna jafnt og þétt.

Vefkaka er lítil textaskrá sem vafrinn þinn vistar á tækinu þínu, með þínu samþykki þegar þess er krafist. Í henni eru upplýsingar sem sendar eru til baka þegar þú heimsækir vefsíðuna næst.

Tegundir vefköku sem við notum

  • Nauðsynlegar vefkökur: Þessar vefkökur eru forsenda þess að vefsíðan virki rétt. Þær gera þér meðal annars kleift að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum, halda þér innskráðum og leggja inn pantanir.

  • Greiningar- og frammistöðukökur: Þessar vefkökur hjálpa okkur að telja gesti og sjá hvernig fólk notar vefsíðuna. Þannig getum við bætt upplifunina og gert vefsíðuna skilvirkari. Þær eru aðeins notaðar ef þú samþykkir það.

  • Virknikökur: Þessar vefkökur þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðuna og muna eftir óskum þínum, til dæmis tungumálavali eða völdu fyrirtæki.

Þriðju aðilar

Auk okkar eigin vefköku geta eftirfarandi þriðju aðilar sett vefkökur eða safnað upplýsingum úr vafranum þínum þegar þú notar vefsíðuna:

  • Kenni: Auðkenningarþjónusta sem við notum við innskráningu með rafrænum skilríkjum. Hún setur nauðsynlegar vefkökur á meðan innskráning fer fram.
  • Google Analytics: Vefgreiningarþjónusta frá Google sem hjálpar okkur að bæta vefsíðuna. Vefkökur frá Google Analytics eru aðeins virkar ef þú samþykkir greiningarkökur.

Vefkökur þriðju aðila falla undir persónuverndar- og vefkökustefnu viðkomandi aðila.

Stjórn á vefkökum

Þú getur samþykkt eða hafnað greiningarkökum þegar þú kemur inn á vefinn og breytt valinu síðar undir „Vefkökustillingar“ neðst á síðunni.

Þú getur einnig breytt vefkökustillingum þínum hvenær sem er í vafranum. Í flestum vöfrum er hægt að:

  • Hafna öllum vefkökum eða eingöngu vefkökum þriðju aðila.
  • Skoða þær vefkökur sem þegar eru vistaðar og eyða þeim.
  • Fá tilkynningu þegar nýjum vefkökum er bætt við.

Athugaðu að ef þú hafnar nauðsynlegum vefkökum mun vefsíðan ekki virka sem skyldi.

Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga vegna vefköku er að finna í persónuverndarstefnu okkar.

Breytingar á vefkökustefnu

Við endurskoðum vefkökustefnu þessa reglulega og hún getur tekið breytingum. Nýjasta útgáfan er ávallt aðgengileg á vefsíðu okkar.

Vefkökustefna þessi var síðast uppfærð þann 9. september 2026.