Almennir skilmálar Málmiðjunnar ehf.
1. Almennt
1.1 Skilmálar þessir gilda um öll kaup og allar pantanir á vörum og þjónustum í vefverslun og pöntunarkerfi Málmiðjunnar ehf., kt. 681125-0510, Vatnagarðar 22, 104 Reykjavík (hér eftir „Málmiðjan“ eða „seljandi“), á vefsvæðinu malmidjan.is (hér eftir „vefverslunin“). Skilmálar þessir gilda einnig um slík kaup og pantanir sem eiga sér stað í gegnum tölvupóst, símleiðis eða með öðrum hætti. Skilmálar þessir skilgreina réttindi og skyldur félagsins annars vegar og kaupenda þess hins vegar.
1.2 Með því að stofna aðgang að vefversluninni og/eða leggja inn pöntun telst kaupandi hafa kynnt sér og samþykkt skilmála þessa, nema um annað sé samið skriflega.
1.3 Viðskiptavinir seljanda eru bæði (i) neytendur og (ii) atvinnukaupendur, þ.m.t. lögaðilar, verktakar og aðrir aðilar sem kaupa í atvinnuskyni, og gilda skilmálar þessir um þessa ólíku viðskiptavini eftir því sem við á.
1.4 Skilmálar þessir skulu ekki rýra lögbundin réttindi neytenda. Stangist ákvæði skilmála þessa á við ófrávíkjanleg ákvæði laga um neytendakaup, laga um þjónustukaup eða laga um neytendasamninga skulu ákvæði laganna ganga framar.
2. Skilgreiningar
2.1 Í skilmálum þessum hafa eftirfarandi orð og hugtök eftirfarandi merkingu:
| Hugtak | Merking |
|---|---|
| afhending | Það tímamark þegar vara er afhent kaupanda eða flutningsaðila á starfsstöð seljanda eða á öðrum umsömdum afhendingarstað. |
| atvinnukaupandi | Kaupandi sem ekki telst neytandi, þ.m.t. lögaðilar, verktakar og einstaklingar sem kaupa í atvinnuskyni. |
| kaupandi | Sá aðili, neytandi eða atvinnukaupandi, sem leggur inn pöntun í vefverslunina. Sé um að ræða lögaðila ber sá sem kemur fram fyrir hans hönd ábyrgð á að hafa tilskildar heimildir til skuldbindingar. |
| kerfið | Stafrænt pöntunar- og verkstjórnunarkerfi seljanda sem kaupandi hefur aðgang að í gegnum vefverslunina. |
| lög um lausafjárkaup | Lög um lausafjárkaup nr. 50/2000. |
| lög um neytendakaup | Lög um neytendakaup nr. 48/2003. |
| lög um neytendasamninga | Lög um neytendasamninga nr. 16/2016. |
| lög um vexti og verðtryggingu | Lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001. |
| lög um þjónustukaup | Lög um þjónustukaup nr. 42/2000. |
| neytandi | Einstaklingur sem kaupir utan atvinnustarfsemi, sbr. 1. gr. laga um neytendakaup og 1. gr. laga um þjónustukaup. |
| óviðráðanleg atvik / Force Majeure | Atvik sem eru utan eðlilegrar stjórnunar aðila og sem ekki er hægt að sjá fyrir, koma í veg fyrir eða yfirstíga, þar á meðal en ekki takmarkað við náttúruhamfarir, stríð, verkföll, faraldur, eldsvoða, jarðskjálfta, eldgos, aðgerðir stjórnvalda, löggjöf eða reglugerðir, birgðaskort hjá birgjum, truflun á flutningsleiðum eða önnur sambærileg atvik. |
| sérpöntun / sérframleiðsla | Vörur sem eru framleiddar eða pantaðar sérstaklega samkvæmt forskriftum, teikningum eða óskum kaupanda og eru ekki hluti af stöðluðu vöruúrvali seljanda. |
| staðlaðar vörur | Vörur úr stöðluðu vöruúrvali seljanda sem eru ekki framleiddar eða pantaðar sérstaklega samkvæmt forskriftum kaupanda. |
| verk | Verkefni sem skráður notandi stofnar í vefversluninni í tengslum við pantanir, þar sem vistaðar eru upplýsingar um verkið, tengiliði og aðrar viðeigandi upplýsingar. |
3. Innskráning og aðgangur að vefversluninni
3.1 Innskráning og aðgangur að vefversluninni fer fram með rafrænni auðkenningu og ber notandi ábyrgð á því að hann hafi heimild til að koma fram fyrir hönd kaupanda sem hann skráir sig inn fyrir. Seljandi ber enga ábyrgð á innri heimildum innan fyrirtækis kaupanda.
3.2 Seljandi áskilur sér rétt til að synja viðskiptum eða takmarka aðgang að vefversluninni vegna vangoldinna reikninga, ófullnægjandi greiðsluheimilda eða ógjaldfærni kaupanda. Seljanda er heimilt að afla allra þeirra upplýsinga sem teljast nauðsynlegar til að meta greiðsluheimildir kaupanda og afgreiðslu pöntunar.
4. Pöntunarferli
4.1 Seljandi framleiðir og selur sérsniðnar vörur samkvæmt forskriftum, teikningum og/eða upplýsingum frá kaupanda. Kaupandi ber ábyrgð á því að allar þær upplýsingar, teikningar og forskriftir sem hann veitir séu réttar og fullnægjandi fyrir tilætlaða notkun. Seljandi ber ekki ábyrgð á göllum eða annmörkum sem rekja má til upplýsinga frá kaupanda eða aðilum á vegum kaupanda.
4.2 Seljandi skal leitast við að veita nákvæmar upplýsingar um vörur og þjónustu, þar á meðal um efni, mál, verð og áætlaðan afhendingartíma. Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða prentvillur og geta tekið breytingum án fyrirvara. Ef villa kemur upp í skráningu upplýsinga um vöru, svo sem rangar verðupplýsingar, áskilur seljandi sér rétt til að breyta eða hætta við pöntun.
4.3 Pöntun er gerð með því að kaupandi velur vörur og/eða þjónustu, fyllir út nauðsynlegar upplýsingar og staðfestir pöntun í vefversluninni. Pöntun telst bindandi fyrir seljanda þegar seljandi hefur staðfest hana rafrænt, t.d. með tölvupósti, eða þegar afhending og/eða greiðsla hefur farið fram. Öll tilboð eru gerð með fyrirvara um breytingar á gengi gjaldmiðla, innflutningsgjöldum, tollum eða öðrum þáttum sem kunna að hafa áhrif á verðlag.
4.4 Kaupanda ber að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst og ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun.
4.5 Þegar um sérpantanir eða sérframleiðslu er að ræða getur seljandi áskilið sér innborgun áður en framleiðsla hefst eða pöntun er sett í framkvæmd.
5. Verð og greiðsluskilmálar
5.1 Seljandi heldur eignarrétti að seldum vörum þar til kaupverð þeirra hefur verið greitt að fullu, eftir því sem lög heimila.
5.2 Verð á vörum og þjónustu er gefið upp í íslenskum krónum ásamt virðisaukaskatti sem skal koma skýrt fram í vefversluninni og á pöntunarstaðfestingu.
5.3 Kaupanda ber að greiða útgefna reikninga í samræmi við þá skilmála sem á þeim eru tilgreindir. Athugasemdir við útgefna reikninga skulu berast seljanda með sannanlegum hætti innan fimmtán (15) daga frá útgáfudegi þeirra, að öðrum kosti telst kaupandi hafa samþykkt reikning. Þessi frestur takmarkar þó ekki lögbundin réttindi neytenda til að bera fyrir sig galla eða vanefndir innan þeirra fresta sem leiða af lögum.
5.4 Á gjaldfallna reikninga reiknast hæstu lögleyfðu dráttarvextir sbr. III. kafla laga um vexti og verðtryggingu, auk alls innheimtukostnaðar.
5.5 Seljandi áskilur sér rétt til að afla upplýsinga um lánshæfi kaupanda í þeim tilgangi að meta greiðsluheimildir, heimildir til greiðslufrestunar eða annarra greiðslulausna. Allar upplýsingar sem seljandi telur nauðsynlegar til að afgreiða pöntun kaupanda, svo sem upplýsingar frá Creditinfo, verða unnar í samræmi við persónuverndarstefnu félagsins.
6. Afhending
6.1 Afhendingartími vöru er áætlaður og birtur í pöntunarferli og á pöntunarstaðfestingu. Seljandi mun leitast við að afhenda vörur og þjónustur eins fljótt og unnt er og upplýsa kaupanda um mögulegar tafir. Sé kaupandi neytandi og ekki hefur verið samið um afhendingartíma skal seljandi afhenda vöru eigi síðar en innan þrjátíu (30) daga.
6.2 Afhending skal fara fram á starfsstöð seljanda á umsömdum afhendingartíma nema um annað sé samið milli aðila.
6.3 Kaupandi ber ábyrgð á vöru frá afhendingu, nema um annað sé samið sérstaklega. Ef kaupandi vitjar ekki vöru eða veitir henni viðtöku á réttum tíma af ástæðum sem rekja má til kaupanda eða atvika sem hann varða, flyst áhættan yfir á kaupanda þegar varan er honum til ráðstöfunar.
6.4 Ef kaupandi vitjar ekki vöru innan sjö (7) virkra daga, áskilur seljandi sér rétt til þess að krefja kaupanda um geymslu- og/eða umsýslugjald samkvæmt gjaldskrá seljanda.
7. Sendingar
7.1 Kaupandi ber allan kostnað af sendingu vöru, nema um annað hafi sérstaklega verið samið.
7.2 Seljandi ber ekki ábyrgð á tjóni sem verður á vöru við flutning eftir að hún hefur verið afhent. Ef seljandi felur flutningsaðila að senda vöru að ósk atvinnukaupanda telst vara afhent þegar hún hefur verið fengin flutningsaðila í hendur, nema annað leiði af samningi eða flutningsskilmálum.
7.3 Sérákvæði um neytendur: Ef seljandi felur flutningsaðila að senda vöru að ósk neytanda færist áhætta af því að varan týnist eða skemmist til neytanda þegar neytandi, eða þriðji aðili sem neytandi tilgreinir (annar en flutningsaðilinn), hefur tekið vöruna í sína vörslu. Áhættan færist þó til neytanda þegar varan er afhent flutningsaðila ef neytandi hefur sjálfur fengið flutningsaðila til að flytja vöruna og sá kostur var ekki í boði hjá seljanda.
8. Afhendingardráttur
8.1 Verði dráttur á afhendingu vöru til kaupanda vegna óviðráðanlegra atvika (e. Force Majeure) sem seljandi fær ekki ráðið við, ber seljandi ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni, þ.m.t. rekstrartapi, sem verða kann vegna slíks afhendingardráttar.
8.2 Hið sama gildir ef seinkun verður á afhendingu vöru sem kemur seint eða gölluð frá erlendum birgjum seljanda.
9. Afpöntun
9.1 Kaupanda er óheimilt að afpanta vöru eða þjónustu ef um sérpöntun eða sérframleiðslu er að ræða. Ef kaupandi afpantar slíka pöntun ber hann fulla ábyrgð á öllum kostnaði og tjóni sem seljandi verður fyrir vegna afpöntunarinnar, þ.m.t. kostnaði við efni, vinnu og tapaðan hagnað.
9.2 Kaupandi skal greiða allt það tjón sem seljandi verður fyrir vegna afpöntunar.
9.3 Sérákvæði um neytendur: Ef kaupandi er neytandi og afpantar vöru áður en hún er afhent getur seljandi ekki haldið fast við kaupin og krafist greiðslu. Seljanda er þó heimilt að krefjast skaðabóta fyrir það tjón sem afpöntunin veldur.
9.4 Sérákvæði um neytendur: Ef kaupandi er neytandi er honum heimilt að afpanta þjónustu þótt verk sé hafið. Seljanda er heimilt að krefjast greiðslu fyrir vinnu sem þegar hefur verið innt af hendi og þá vinnu sem nauðsynlegt er að ljúka þrátt fyrir afpöntun, og eftir atvikum skaðabóta fyrir afleitt tjón.
10. Skilaréttur
10.1 Kaupandi skal kynna sér ástand vöru við afhendingu. Vöru er aðeins hægt að skila ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt, nema um annað hafi sérstaklega verið samið:
- vara er sannanlega haldin galla;
- vara er í sama ástandi og við afhendingu;
- ekki er búið að vinna eða eiga við vöruna á nokkurn hátt eftir afhendingu;
- vöru er skilað innan fimmtán (15) daga frá afhendingu; og
- ekki er um að ræða vöru sem er sérpöntuð eða sérframleidd.
10.2 Við vöruskil fær kaupandi inneignarnótu frá seljanda að andvirði vörunnar. Kostnaður vegna vöruskila skal dreginn frá inneignarfjárhæð.
10.3 Áhætta af hinni seldu vöru hvílir á kaupanda allt þar til seljandi hefur aftur veitt henni viðtöku.
11. Ábyrgð vöru og takmörkun ábyrgðar
11.1 Um ábyrgðartíma vara fer samkvæmt lögum um lausafjárkaup.
11.2 Sérákvæði um neytendur: Þegar um er að ræða kaupanda sem er neytandi fer um ábyrgðartíma vara samkvæmt lögum um neytendakaup.
11.3 Ábyrgð seljanda vegna galla takmarkast við beint tjón og nemur aldrei hærri fjárhæð en kaupverð vörunnar.
11.4 Ef í ljós kemur á ábyrgðartíma að varan sé haldin framleiðslu- og/eða efnisgalla er seljanda heimilt, eftir eigin vali, að bæta úr gallanum á eigin kostnað, skipta vörunni út fyrir nýja eða veita afslátt af kaupverði.
11.5 Það telst ekki til galla ef vara hefur verið meðhöndluð, unnin, skeytt við fasteign, notuð eða farið með hana á annan hátt en mælt er fyrir um í leiðbeiningum seljanda.
11.6 Ef kaupandi telur vöru hafa verið gallaða við afhendingu skal kaupandi koma kvörtun áleiðis til seljanda án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en innan þriggja (3) mánaða frá afhendingu. Um frest neytenda til kvartana fer samkvæmt lögum.
11.7 Kaupandi ber ábyrgð á því að velja vöru sem hentar tilætlaðri notkun hennar og að tryggja að hún uppfylli allar kröfur sem hann gerir til hennar.
11.8 Seljandi ber ekki ábyrgð á afleiddu tjóni, óbeinu tjóni eða rekstrartapi kaupanda sem kann að verða vegna galla, skemmda eða eyðileggingar á vöru, hvort sem það er á ábyrgðartímanum eða eftir hann.
11.9 Sérákvæði um neytendur: Í þeim tilvikum þar sem kaupandi er neytandi fer um meinta galla á vöru samkvæmt lögum um neytendakaup og um þjónustu samkvæmt lögum um þjónustukaup.
12. Nýskráning verks í kerfinu
12.1 Skráðir notendur geta stofnað verk í kerfinu. Við stofnun verks skrá notendur heiti viðkomandi verks ásamt upplýsingum um tengiliði viðskiptavina sinna og aðrar þær upplýsingar sem þeir kjósa að vista.
12.2 Notendur bera fulla ábyrgð á réttleika og nákvæmni þeirra upplýsinga sem þeir skrá í kerfið um viðskiptavini sína, starfsmenn sína og verk. Seljandi ber ekki ábyrgð á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum sem notendur skrá.
12.3 Persónugreinanlegar upplýsingar sem skráðar eru í kerfið verða varðveittar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 (hér eftir „persónuverndarlög“).
12.4 Kerfið skráir allar aðgerðir notenda, þ.m.t. pantanir, breytingar á pöntunum og innskráningar í kerfið til að tryggja rekjanleika.
13. Hugverkaréttur
13.1 Allur hugverkaréttur tengdur vefversluninni, þar á meðal hugbúnaður, vefsíðuhönnun, vörumerki og efni, er eign seljanda. Kaupandi öðlast ekki neinn hugverkarétt með kaupum eða í tengslum við notkun vefverslunar.
14. Persónuvernd
14.1 Seljandi leggur áherslu á að vernda persónuupplýsingar kaupanda, viðskiptavina og starfsmanna hans. Öll vinnsla persónuupplýsinga af hálfu seljanda fer fram í samræmi við persónuverndarlög.
14.2 Nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga af hálfu seljanda má finna í persónuverndarstefnu seljanda.
15. Ágreiningsmál
15.1 Um skilmála þessa gilda íslensk lög.
15.2 Aðilar skulu leitast við að ná sáttum ef upp kemur ágreiningur um framkvæmd eða túlkun skilmála þessa.
15.3 Rísi upp ágreiningsmál út af skilmálum þessum sem ekki verður leyst með sáttum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
16. Önnur ákvæði
16.1 Seljandi áskilur sér rétt til að uppfæra eða breyta skilmálum þessum fyrirvaralaust. Tilkynnt er um slíkar breytingar með birtingu á vefsíðu seljanda. Minniháttar breytingar taka gildi við birtingu. Verulegar breytingar á skilmálum taka gildi að liðnum þrjátíu (30) dögum frá birtingu á vefsíðu seljanda og tilkynningu til skráðra kaupenda með tölvupósti á skráð netföng þeirra.
16.2 Skilmálum þessum var síðast breytt þann 12. maí 2026.