
Nýtt fyrirtæki að Vatnagörðum 22 framleiðir stálklæðningar, áfellur og loftræstistokka og selur í eigin vefverslun.
Málmiðjan er tekin til starfa á íslenskum byggingarvörumarkaði. Félagið framleiðir stálklæðningar, áfellur, loftræstistokka og rör í verksmiðju sinni að Vatnagörðum 22 í Reykjavík, þar sem komið hefur verið upp nýrri aðstöðu og fjárfest í vélbúnaði til framleiðslu og úrvinnslu málmvara. Markmiðið er að bjóða samkeppnishæfa vöru, stytta afhendingartíma og einfalda pöntunarferlið.
Hráefnið fæst með samstarfi við Baosteel, sem er hluti af China Baowu, stærstu stálsamstæðu heims. Júlíus Geir Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Málmiðjunnar, segir félagið ekki ætla að keppa á verðinu einu saman.
Við sjáum tækifæri í því að bjóða sterka vöru á samkeppnishæfu verði, en ekki síður í því að einfalda allt ferlið fyrir viðskiptavininn. Það skiptir miklu máli að geta brugðist hratt við og afgreitt pantanir með skýrum og skilvirkum hætti.
Stálið er heit-galvaniserað með ál-zink magnesíumhúð, sem veitir aukna tæringarvörn umfram hefðbundið bárujárn, ekki síst á skurðbrúnum og í götum. Litað efni er grunnað og húðað með PVDF í 2/2 kerfi ofan á húðina, sem ver stálið enn frekar gegn veðrun og tæringu. Hvort tveggja er valið með íslenskar aðstæður í huga.
Pantanir fara fram í vefverslun félagsins. Þar setur viðskiptavinurinn pöntunina saman, sér verð og áætlaðan afhendingartíma og fylgist með stöðu hennar.
Við teljum að þarna sé mikið svigrúm til framfara á markaðnum. Fólk vill geta séð hlutina skýrt, gengið frá pöntun þegar því hentar og fengið vöruna afhenta án óþarfa tafa. Það er þessi hugsun sem við erum að byggja starfsemina á.
Byggingarmarkaðurinn er krefjandi um þessar mundir, en Júlíus segir það einmitt kalla á nýja aðila með skýrari verkferla og betri yfirsýn. Málmiðjan eigi að nýtast bæði stærri verktökum og smærri aðilum sem vilja áreiðanlega afgreiðslu og faglega þjónustu.
Við erum að stíga inn á markað þar sem samkeppnin er hörð, en við trúum því að þar sé pláss fyrir aðila sem sameinar öflugt hráefni, nútímalega framleiðslu og einfaldari þjónustu. Það er sú leið sem við ætlum að fara.