
Framleiðslan okkar, vörurnar, efnin og starfsumhverfið á einum stað.
Málmiðjan selur blikkplötur, flasningar, loftræstistokka og loftræstirör, festingar og fittings.
Áhersla er lögð á að einfalda og auðvelda viðskiptavinum að leggja inn pantanir með einföldum hætti á heimasíðu félagsins. Verksmiðja Málmiðjunnar að Vatnagörðum 22 er búin nýjum og sjálfvirkum vélbúnaði sem gerir fyrirtækinu kleift að bjóða viðskiptavinum sínum upp á hágæða vörur á samkeppnishæfu verði með stuttum afhendingartíma.
| Hagstætt verð | Stuttur afhendingartími | Auðvelt að panta | Framúrskarandi efnisgæði |
| Með nýrri framleiðslutækni og sjálfvirkni er vara framleidd á hagkvæmari máta en áður. Framleiðslubúnaður félagsins er nýr og afkastamikill. | Viðskiptavinir geta fengið verð strax á sölusíðu félagsins, pantað utan opnunartíma og fengið upp gefinn afhendingartíma. | Vefverslun félagsins er notendavæn og þægileg, viðskiptavinir geta fylgst með stöðu pantana í rauntíma. | Hráefni Málmiðjunnar er frá Baosteel sem er stærsti og framsæknasti stálframleiðandi í heimi. Stálið sem Málmiðjan notar í klæðningar er í háum gæðaflokki. |
Framleiðsla Málmiðjunnar byggir á öflugum og nútímalegum búnaði sem gerir fyrirtækinu mögulegt að tryggja gæði, skilvirkni og afhendingaröryggi. Í verksmiðjunni eru framleiðsluvélar sem mynda samþættar framleiðslulínur fyrir klæðninga- og loftræstilausnir. Þannig getur Málmiðjan boðið viðskiptavinum upp á fjölbreytt úrval sérsniðinna lausna með skjótum og skilvirkum hætti.
Vöruframboð fyrirtækisins samanstendur af þremur formum sem eru hefðbundin bára (18/76), smábára (8/32) og trapisa (24/136) sem framleiddar eru í 8 litum og ólitað. Hráefnið kemur frá Baosteel, stærsta og þróaðasta stálframleiðanda í heimi. Stálið er heit-galvaniserað með ál-zink magnesium húð 180 g/m², sem samsvarar um 20–22 µm þykkt á hvorri hlið. Meðhöndlun með magnesíum veitir aukna tæringarvörn en hefðbundið bárujárn og er sérstaklega hentugt fyrir íslenskar aðstæður.
Málmiðjan býður upp á bæði litað og ólitað bárujárn með fingrafaravörn, litaða efnið er grunnað og litað með PVDF-húðun sem er máluð yfir ál-zink magnesium húðina í 2/2 kerfi sem ver stálið en frekar gegn veðrun og tæringu. Hægt er að sérpanta lengdir á plötum eftir þörfum. Viðskiptavinur getur gert pöntun beint í vefverslun Málmiðjunnar, valið einstaka hluta og séð verð. Viðskiptavinur safnar pöntun saman í körfu og sendir til Málmiðjunnar sem síðan staðfestir og lætur viðskiptavin vita þegar varan er tilbúin.
Helstu tegundir:
Kasettu klæðningar
Pönnu klæðningar
Falskar læstar klæðningar
Læstar klæðningar
Slettar klæðningar
Sérmótaðar klæðningar
Klæðningar sem framleiddar eru beint úr rúllum eru almennt hagkvæmari en klæðningar sem framleiddar eru úr plötum, enda nýtist efnið betur og framleiðslan verður skilvirkari.
Klæðningar frá Málmiðjunni eru framleiddar í réttum lengdum og eru merktar með strikamerkjum. Þannig getur klæðningarverktaki á verkstað með einföldum hætti skannað stikamerki til að auðkenna eða staðsetja viðkomandi hluta á byggingu. Þetta gerir uppsetningu á verkstað einfaldari, hraðari og öruggari.
Áfellur eru hluti af undirbúningi og lokafrágangi í bæði þakvinnu, veggklæðningu og frágangi við hurðir og glugga. Áfellur eru ýmist framleiddar áður en klæðningarvinna hefst eða eftir að henni lýkur, en þá þarf oft að sérsmíða síðustu stykkin í lokafrágangi.
Málmiðjan framleiðir allar áfellur sem tilheyra þegar viðskiptavinir kaupa stálklæðningar. Lögð er áhersla á að viðskiptavinir fái allar áfellur afhentar samhliða klæðningu, kjósi hann það, til að tryggja skilvirkni í uppsetningu.
Málmiðjan framleiðir áfellur úr áli fyrir verktaka og aðra sem það kjósa hvort sem það er úr plötum eða rúllum (coils). Þar sem Málmiðjan framleiðir áfellur beint úr rúllum næst fram verulegt hagræði í bæði efnisnýtingu og framleiðslu. Þar af leiðandi eru áfellur sem framleiddar eru úr rúllum hagkvæmari en áfellur sem framleiddar eru úr plötum.
Áfellur frá Málmiðjunni eru merktar með strikamerki, Þannig getur klæðningarverktaki á verkstað með einföldum hætti skannað stikamerkið á áfellunni til að auðkenna hana eða staðsetja í húsinu. Auk þess sem viðkomandi þarf ekki að skera áfelluna á staðnum sem sparar mikinn tíma og kostnað og minnkar hættu á skemmdum á á henni eða í gleri.
Viðskiptavinur getur gert pöntun beint í vefverslun Málmiðjunnar, valið einstaka hluta og séð verð. Viðskiptavinur safnar pöntun saman í körfu og sendir til Málmiðjunnar sem síðan staðfestir og lætur viðskiptavin vita þegar varan er tilbúin.
Málmiðjan hefur fjárfest í alsjálfvirkri stokkavél sem framleiðir tvær gerðir af samsetningarflönsum úr rúllefni, annars vegar 20 mm og hins vegar 30 mm flansa. Vélin læsir stokkunum jafnframt saman þannig að þeir koma fullsamsettir úr framleiðsluferlinu.
Stokkarnir eru seldir með áföstum flönsum. Við framleiðslu eru flansarnir myndaðir með uppábroti efnis á endum stokksins, þannig að stokkur og flansar verða eitt stykki án samskeyta. Þetta gerir stokkana þéttari og lausa við skrúfuenda sem safna á sig óhreinindum eins og eru á hefðbundnum stokkum, auk þess sem það sparar vinnu við að festa flansa við enda stokkana á verkstað. Stokkar með áföstum flönsunum eins og þessir uppfylla loftþéttleikastuðul D, staðli DW/144 og eru einu stokkarnir á Íslandi sem það gera.
Málmiðjan framleiðir kantaða loftræstistokka frá hæð: 100 mm x breidd: 150 mm upp í hæð: 2.500 mm x breidd: 2.500 mm. Lengd stokkanna er 1.390 mm með 20 mm flansi og 1.350 mm með 30 mm flansi. Efnisþykkt á galvaniseruðu stáli er háð stærð stokka og er fáanlegt í 0,6 mm, 0,8 mm, 1 mm og 1,2 mm. Lausir flansar eru seldir sérstaklega þegar stytta þarf stokka.
Á heimasíðu félagsins má sjá fjölbreytt úrval af stokkuðum fittings, svo sem beygjum, minnkunum, breytistykkjum og fleiru. Viðskiptavinur getur gert pöntun beint í vefverslun Málmiðjunnar, valið einstaka hluta og séð verð. Viðskiptavinur safnar pöntun saman í körfu og sendir til Málmiðjunnar sem síðan staðfestir og lætur viðskiptavin vita þegar varan er tilbúin.
Málmiðjan framleiðir loftræstirör frá þvermál: 100 mm upp í 1.600 mm. Rör í 3 m lengd eru staðlaðar, en hægt er að panta rör í lengdum upp að 6 metrum. Efnisþykkt á galvaniseruðu stáli er háð stærð röra og eru fáanleg í 0,6 mm, 0,8 mm, 1,0 mm og 1,2 mm.
Festingar vegna uppsetninga á loftræstirörum er hægt að panta hjá Málmiðjunni samhliða pöntun röra.
Viðskiptavinur getur gert pöntun beint í vefverslun Málmiðjunnar, valið einstaka hluta og séð verð. Viðskiptavinur safnar pöntun saman í körfu og sendir til Málmiðjunnar sem síðan staðfestir og lætur viðskiptavin vita þegar varan er tilbúin.
Helsti birgi Málmiðjunnar er Baosteel (Baoshan Iron & Steel Co., Ltd.), sem er kínverskt stálframleiðandi með höfuðstöðvar í Shanghai. Félagið er dótturfélag China Baowu Steel Group, sem er stærsti stálsamsteypuhópur í heimi. Baosteel sérhæfir sig í framleiðslu á hágæða kolefnisstáli, ryðfríu stáli og sérhæfðum stállausnum fyrir alþjóðlegar atvinnugreinar, þar á meðal bílaiðnað, flug- og geimiðnað og orkuiðnað.
Málmiðjan framleiðir og selur eftir pöntunum sléttar galvaniseraðar plötur í 1.500 mm breidd og þeirri lengd sem óskað er eftir. Plötur eru afhentar á pallettum eða upprúllaðar í minna magni eftir því hvað er hagkvæmara með tilliti til flutnings og meðhöndlunar.
Hjá Málmiðjunni er lögð áhersla á að skapa öruggt, heilbrigt og jákvætt starfsumhverfi. Mannauður fyrirtækisins er einn mikilvægasti þátturinn í rekstrinum og því er markvisst unnið að því að efla þekkingu, hæfni og vellíðan starfsfólks.
Öryggi er ávallt í fyrirrúmi í allri starfsemi fyrirtækisins. Unnið er eftir skýrum verkferlum og eru starfsmenn ávallt fræddir um öryggi og notkun véla og búnaðar. Jafnframt er lögð áhersla á að viðhalda hreinu og skipulögðu vinnuumhverfi sem lágmarkar slysahættu og stuðlar að skilvirkum vinnubrögðum.
Með nútímalegum framleiðslubúnaði, markvissri fræðslu og skýrum öryggisferlum vinnur Málmiðjan að því að tryggja öryggi allra starfsmanna.