Vinkill inn
Einföld flasning

Hvað flasningar gera, hvar þær eiga heima og hvernig þær eru settar upp.
Flasningar, eða áfellur eins og þær eru líka kallaðar, loka samskeytum, köntum og götum á þökum og veggjum svo vatn komist ekki inn. Hér er farið yfir hvað flasning er, hvar hún er notuð, hvernig hún er sett upp og hvaða snið við framleiðum.
Flasning er þunn plata úr húðuðu stáli sem er beygð í ákveðið snið og lögð yfir samskeyti, kanta og göt í þak- og veggklæðningu. Hún á að leiða vatnið út og yfir samskeytin þannig að það komist hvergi inn undir klæðninguna. Flasningin þéttir ekki með kítti heldur með skörun, líkt og þakskífur. Hvert stykki leggst yfir það sem er fyrir neðan og vatnið rennur alltaf ofan á málminum.
Flasningarnar okkar eru beygðar úr sama 0,6 mm álsinkhúðaða stálinu og bárujárnið, annaðhvort ólitaðar eða í sama lit og klæðningin. Þær endast því jafn lengi og þakið sjálft.
Alls staðar þar sem klæðningin endar, breytir um stefnu eða mætir öðrum byggingarhluta þarf flasningu. Það á við um mæni og þakbrúnir, þakkverkar, samskeyti þaks og veggjar, strompa og rör sem standa upp úr þakinu, glugga og hurðir, horn hússins og neðri brún klæðningar við sökkul. Á teikningunni sést hvar hver flasning á heima.
Sömu meginreglur gilda um allar flasningar, hvaða snið sem er.
Skörunin fylgir alltaf vatninu. Efra stykkið leggst yfir það neðra svo vatnið renni yfir samskeytin en ekki inn í þau. Miðað er við minnst 100 mm skörun milli stykkja og um 300 mm í þakkverkum þar sem mest vatn safnast fyrir.
Samskeytin eiga að vera sem fæst. Flasningar eru yfirleitt afgreiddar í 2,5 til 3 m lengjum og aldrei lengri en 4,2 m. Lengra er ekki betra, stálið þenst út og dregst saman eftir hitastigi og þarf að geta hreyft sig í samskeytunum.
Á þaki er flasningin fest í gegnum hábáruna, aldrei í lágbáruna þar sem vatnið rennur. Notaðar eru þakskrúfur eða kambsaumur með þéttiskífu og algengt bil milli festinga er 250 til 300 mm.
Neðri brún flasningar er beygð til baka í lásbrot. Það stífir stykkið, felur skurðkantinn og myndar dropkant sem sleppir vatninu fram af í stað þess að það sogist inn undir.
Áður en kjöljárnið er sett á er lágbáran á efsta enda bárujárnsins beygð upp. Þannig kemst vatn og skafrenningur síður inn undir kjölinn.
Kítti og þéttiborði eru aðeins til vara við samskeyti og festingar. Það eru skörunin og hallinn sem halda vatninu úti og á vel unninni flasningu sést lítið sem ekkert kítti.
Ólíkir málmar mega ekki liggja saman. Kopar og blý valda tæringu í snertingu við álsinkhúðað stál, svo festingar eiga að vera úr ryðfríu stáli eða sama efni og flasningin.
Kantáfella á gafli nær yfir tvær ystu hábárurnar og um 6 cm niður á þakkantinn og er með lásbroti að neðan. Hún er fest í gegnum hábáruna með um 300 mm millibili. Á langhliðum nær hún yfir þakkantinn og niður í þakrennuna.
Skotrenna er lögð í þakkverkina undir bárujárnið, minnst 300 mm til hvorrar hliðar frá miðju kverkarinnar, og bárujárnið endar ofan á henni. Aldrei er neglt í gegnum skotrennu, hvert gat í henni er leki.
Strompáfella er í þremur hlutum. Neðra stykkið leggst ofan á járnið fyrir neðan strompinn, hliðarstykkin ganga upp með hliðunum og efra stykkið fer undir járnið fyrir ofan strompinn, þannig að vatnið sem kemur ofan af þakinu rennur yfir það og fram hjá strompinum.
Snjógildra heldur snjó og ís á þakinu svo hann falli ekki í heilu lagi fram af brúninni. Hún er sett neðarlega á þakflötinn, einkum yfir inngöngum og gangleiðum, og fest með þakskrúfum og límkítti í hábáru eða lágbáru með um 40 cm millibili.
Hér eru öll flasningasniðin úr vörulistanum okkar. Hvert þeirra er beygt eftir máli, í þeirri lengd, með þeim leggjum og í þeim lit sem verkið kallar á. Finnirðu ekki sniðið sem þig vantar geturðu teiknað það sjálfur.
Á mæninum, efst á þakinu þar sem þakfletirnir tveir mætast.
Á þakbrúnum við gafla, og eftir atvikum á langhliðum, þar sem bárujárnið endar. Hún leggst yfir ystu bárurnar og niður á þakkantinn.
Í þakkverkinni, þar sem tveir þakfletir mætast og mynda rennu niður að þakbrún.
Þar sem þak eða skyggni mætir vegg. Hún gengur upp með veggnum og út yfir þakið.
Allan hringinn um strompinn þar sem hann kemur upp úr þakinu, neðra stykki, hliðarstykki og efra stykki.
Neðarlega á þakfletinum, samsíða þakbrúninni, einkum yfir inngöngum og gangleiðum.
Vatnsbretti undir glugganum og yfirstykki ofan við hann.
Meðfram hliðum glugga og hurða, upp við karminn.
Á úthornum hússins, þar sem tveir veggir mætast og klæðningin beygir út fyrir hornið.
Í innhornum, til dæmis þar sem útbygging mætir vegg hússins.
Neðst á klæðningunni við sökkulinn og á öðrum brúnum og samskeytum í klæðningunni.
Einföld flasning
Einföld flasning
Einföld flasning
Einföld flasning
Einföld flasning
Einföld flasning
Gluggaflasning
Gluggaflasning
Gluggaflasning
Gluggaflasning
Gluggaflasning
Hliðarstykki
Hliðarstykki
Hliðarstykki
Hornaflasning
Hornaflasning
Hornaflasning
Hornaflasning
Hornaflasning
Hornaflasning
Kantáfella
Kantáfella
Kantáfella
Kjölur
Kjölur
Listaflasning
Listaflasning
Listaflasning
Listaflasning
Listaflasning
Snjógildra
Snjógildra
Strompáfella
Strompáfella
Strompáfella
Teiknaðu þína eigin flasningu frá grunni.